20.08.2007 00:21:29 / hreggi89

Vúhú!

Versló, bjór og danstónlist, mmmmmmm. Myndirnar eru komnar á Flickr myndasíðuna mína:http://www.flickr.com/photos/10937493@N06/ . Myndirnar eru í öfugri röð en þær eru þar samt. Ég fór til rvk að vinna í seinustu vinnu og þar sem að finnur var búinn að kaupa mixer handa mér og ég átti pening þá ákvað ég auglýsa á hugi.is eftir spilurum, ég bjóst ekkert við því að fá svar strax en daginn eftir hafði jonfri samband við mig og það endaði með því að ég keypti tvo Denon S5000 geisladiskaspilara af honum, heví flottir með plötu sem snýst og alles. En það er ekki meira en það, rvk að vinna aftur á morgun og kannski maður geri eitthvað næstu helgi. Já svo tók ég líka einhverjar myndir á Dalvík seinustu helgi og ég set þær á myndasíðuna öruglega bráðlega. En ég ættla að enda þetta blog með mynd af settinu mínu.

Mixerinn er kannski ekki uppá marga fiska en spilararnir eru mega.

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.07.2007 20:37:16 / hreggi89

Myndir og Blog

Þá er ég búinn að setja inn nýjar myndir, bæði frá ferðinni okkar Alla til Seyðisfjarðar og myndir úr kveðjupartýinu hennar Kamillu, Margrét Helga hringdi í mig seinast fimmtudag og spurði hvort að ég ætti einhverja diska handa henni til að spila á þessu partýi, ég hitti hana nefnilega á Seyðisfirði og sagði henni að hringja ef henni vantaði tónlist, og af góðmennsku minni bauðst ég til þess að koma með tölvuna mína og spila bara fyrir þær og því var tekið fagnandi, var reyndar svoldið lúðalegt að vera með tölvuna og spila á hana en ég hef ekkert betra að bjóða. Ég tók sjálfur örfáar af myndunum af kveðjupartýinu vegna þess að ég var jú að spila, en ég bað kunningja sem að gengu framhjá um að taka myndir fyrir mig og tókst þeim það ágætlega.

Jæja, nú stittist í verslunarmannarhelgina og þá mun ég taka myndir ef ekki bara videoblog í leiðinni, reyndar misheppnaðist það frekar í fyrra vegna þess að það var orðið svo dimmt úti að maður sá eiginlega ekkert í blogginu, en við sjáum til. Ættla ekki að hafa það lengra en þetta, skoðið videoblogið ef þið eruð ekki búin að því og svo eru auðvitað myndirnar!


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 12:40:43 / hreggi89

New Beginning

Jæja, byrjaður aftur, er meira að segja með eitt videoblog hérna þar sem að við Alli fórum til Seyðisfjarðar að sjá Dj Mehdi spila og hann stól algjörlega undir mínum væntingum allavega! En ég er í stuttu matarhléi eins og er þannig að ég ættla bara að henda inn video-inu, set kannski þær örfáu myndir inn seinna.

 


» 6 hafa sagt sína skoðun